2. febrúar 2010

Forvarnir í fyrirrúmi - Vinnuverndarráðstefna

Þann 4. febrúar nk. verður haldin vinnuverndarráðstefna Vinnueftirlitsins og VÍS í aðalskrifstofu VÍS, á 5. hæð í Ármúla 3. Boðið verður upp á mörg áhugaverð erindi en aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis. Skráning fer fram á heimasíðu VÍS, www.vis.is.

 

Opin ráðstefna VÍS og Vinnueftirlitsins 2010
Forvarnir í fyrirrúmi

 

Tími: Fimmtudaginn 4. febrúar 2010, kl. 13:00 – 16:00

Staður: Aðalskrifstofa VÍS, Ármúli 3, 5. hæð. Aðgangur ókeypis.  Skráning á heimasíðu VÍS, www.vis.is.

Fundarstjóri: Þórunn Sveinsdóttir, deildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu

 

Dagskrá:

13.00  Setning ráðstefnunnar og kynning samstarfs VÍS og VER - Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS

13.10  Áhættumat fyrirtækja – Guðmundur Ingi Kjerúlf, verkefnastjóri hjá Vinnueftirlitinu - Hvað er áhættumat?

13.30  Áhættumat og forvarnir sveitarfélaga – Einar G. Magnússon, verkefnastjóri áhættumats hjá Rangárþingi eystra
Skipulag og framkvæmd áhættumats - reynsla okkar eftir fyrstu umferð

13.50  Atvikaskráning hjá Strætó bs. – Steindór Steinþórsson, deildarstjóri akstursdeildar / Bergdís Eggertsdóttir, verkefnastjóri
Fyrstu skrefin og sjáanlegur ávinningur

14.10  Alcan – atvikaskráning – Reynir Guðjónsson, öryggisfulltrúi.
Langtíma ávinningur og árangur atvikaskráningar í álveri

14.30  Kaffi og meðlæti

15.00  Áhættumat og slys hjá bændum – Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu - Áhættumat er leiðin

15.10  Áhættumat á bifreiðaverkstæði – Bjarki Harðarson, forstjóri Bílson
Undirbúningur og gerð áhættumats

15.20  Áhættumat á vélaverkstæði – Kári Pálsson, forstjóri Hamars.
Framkvæmd áhættumats, ávinningur og yfirfærsla á aðrar starfstöðvar

15.30  Forvarnarverðlaun VÍS

15.50  Samantekt á ráðstefnu og áherslur Vinnueftirlitsins 2010 – Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins

16.00  Ráðstefnulok
 

 

Senda á Facebook