Vetrarleiga orlofshúsa og orlofsíbúða 2011-2012
Veturinn 2011-2012 leigir Stéttarfélag Vesturlands út orlofshús í Ölfusborgum, á Illugastöðum í Fnjóskadal og í Húsafelli í Borgarfirði. Orlofsíbúðir að Furulundi 8 á Akureyri og Ásholti 2 í Reykjavík. Skrifstofa Stéttarfélagsins í Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2 a, Borgarnesi annast útleigu á orlofshúsunum og íbúðum, nema hvað Orlofsbyggðin á Illugastöðum annast útleigu á húsi félagsins þar. Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í sumarhúsum eða orlofsíbúðum félagsins. Reykingar eru stranglega bannaðar í orlofshúsum og íbúðum Stéttarfélags Vesturlands.
Ásholt 2, Reykjavík
Orlofssjóður hefur fest kaup á 3ja herbergja íbúð í Ásholti 2. Íbúðin er í stóru fjölbýlishúsi þar sem á annan tug íbúða eru í eigu stéttarfélaga.
Íbúðin var fjögurra herbergja í upphafi og er því mjög rúmgóð. Henni fylgir stæði í bílageymslu, þar sem mjög góð þvottaaðstaða er fyrir bíla. Þvottahús með vönduðum tækjum er í sameign. Eigninni fylgir líka fallegur lokaður garður og er hægt að ganga beint úr íbúðinni út í garðinn. Húsfélagið hefur í sinni þjónustu mann sem sér um alla sameignina og er eignin annáluð fyrir snyrtimennsku á allan hátt. Inngangur í Ásholtið er frá Laugavegi og stendur húsið rétt austan við Hlemm, það er því á mjög góðum stað og miðborgin í þægilegu göngufæri.
Leigutímabil: Hér gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær og verður vikunum ekki úthlutað, hvorki að sumri né vetri til. Hægt er að leigja íbúðina dag fyrir dag á virkum dögum en helgar verða eingöngu leigðar frá föstudegi til sunnudags.
Verð: Fyrir félagsmenn er verðið kr. 4.500 fyrir staka nótt á virkum degi. Fyrir virka viðbótarnótt kr. 3.500 og fyrir helgi er verðið kr. 9.000. Vikan leigist á kr. 21.000 til félagsmanna.
Hægt er að leigja lín fyrir kr. 1.100 á mann, innifalið í því eru rúmföt og baðhandklæði, greiðist á sama tíma og leigan.
Ölfusborgir
Skrifstofa Stéttarfélagsins í Borgarnesi annast útleigu, sími 430 0430. Fyrir húsið í Ölfusborgum þurfa félagsmenn að greiða kr. 3.000 fyrir sólarhringinn, virka daga, helgi er leigð á kr. 10.000 (3 nætur innifaldar) en kr. 15.000 fyrir vikuna.
Húsið í Ölfusborgum er með heitum potti og sólstofu. Svefnaðstaða er fyrir 6-8 manns. Húsið er allt nýuppgert. Tæki og húsbúnaður mjög góður.
Þeir félagsmenn sem dvalið hafa í Ölfusborgum að vetri til eru ekki síður hrifnir af dvölinni þar en þeir sem fara þangað að sumri til. Það er tilvalið að skreppa austur og eiga notalega helgi eða viku í Ölfusinu og brjóta þannig upp skammdegið. Margar skemmtilegar gönguferðir er þar að finna. Ekki skaðar að Hveragerði, Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrarbakki, Selfoss, Laugarvatn, Gullfoss, Geysir o.m.fl. skemmtilegir staðir eru í næsta nágrenni.
Furulundur 8, á Akureyri, íbúð O
Skrifstofa félagsins í Borgarnesi annast útleigu, sími 430 0430. Leigan fyrir félagsmenn er kr. 3.000 pr. sólarhring um helgar og 10.000 kr. fyrir vikuna.
Svefnpláss er fyrir 6-8 manns. Þetta er þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í 19 íbúða, 2ja hæða, fjölbýlishúsi. Allar íbúðirnar eru orlofsíbúðir í eigu stéttarfélaga. Þessi íbúð var keypt haustið 2005. Íbúðin og húsbúnaður eru í góðu ástandi. Akureyri hefur lengi verið vinsæll sumarleyfisstaður en nú gefst okkar félagsmönnum tækifæri til að kynnast bænum að vetrarlagi. Það er ekkert stórmál að skreppa í leikhúsferð eða á skíði um helgi á Akureyri og dvelja í þessari ágætu íbúð Stéttarfélags Vesturlands.
Illugastaðir
Þjónustumiðstöðin Illugastöðum annast útleigu yfir vetrarmánuðina, síminn þar er 462 6199. Húsið á Illugastöðum kostar kr. 10.000 í þriggja sólarhringa helgarleigu og aukanótt í miðri viku er kr. 2.000, en stök nótt í miðri vikur er leigð á kr. 6.000.
Svefnpláss fyrir 6-8 manns. Þeir sem eiga vetrarfrí eða ónotað orlof ættu að hugleiða friðsæla vetrardvöl í nokkra daga í góðu húsi og í fallegu umhverfi Fnjóskadals. Gönguleiðir eru þarna margar og skemmtilegar og. Einnig er stutt að skreppa á Akureyri, til Húsavíkur eða Mývatns og skoða þessa staði að vetri til.
Húsafell
Kiðárskógur 10
Staðsetning og staðhættir: Um er að ræða nýlegan bústað í Kiðárskógum 10. Ekki þarf að kynna Vestlendingum dásemdir Húsafells sem sumardvalarstaðar.
Hús og búnaður: Húsið er 94 fm. með svefnlofti, tveimur svefnherbergjum, svefnkrók í stofu, eldhús og baðherbergi með sturtu. Heitur pottur er á palli. Húsið er búið öllum venjulegum búnaði fyrir 6 til 10 manns.