Sumarleiga orlofshúsa og íbúða Stéttarfélags Vesturlands

 

Sumarleigan er í flestum tilfellum framkvæmd með sérstakri úthlutun, fyrir utan leigu á íbúðinni í Reykjavík. Ef tveir eða fleiri sækja um sama hús á sama tíma þá er farið eftir því hvort viðkomandi umsækjendur hafi fengið úthlutað árinu áður o.s.frv. Umsóknareyðublöð hafa fylgt orlofsblaði félagsins sem gefið er út að vori og umsóknarfresturinn er auglýstur þar sem og á heimasíðu félagsins þegar nær dregur. Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í sumarhúsum eða orlofsíbúðum félagsins.

 

 

 

Orlofshús félagsins

 

Illugastaðir  

Hús og búnaður: Hús félagsins á Illugastöðum í Fnjóskadal er notalegt og vel búið orlofshús með stórri og góðri afgirtri verönd og heitum potti, sem settur var upp fyrir rúmum 4 árum. Hitaveita er komin í orlofsbyggðina. Svefnpláss er fyrir 6-8 manns, sængur og koddar f. 8 og borðbúnaður f. 8. Í húsinu er einnig barnastóll og barnarúm.

Staðsetning og staðhættir: Kyrrðin og náttúrfegurð Fnjóskadalsins er rómuð og ekki langt að fara á Akureyri, til Húsavíkur og/eða Mývatns til að njóta þess sem þar er boðið upp á. Þjónustumiðstöðin á Illugastöðum býður upp á margs konar þjónustu, þar eru seldar hinar ýmsu nauðþurftir og einnig er þar mjög góð sundlaug.

Leigutímabil í boði: Sumarhúsið stendur félagsmönnum til boða í allt sumar, frá 27. maí til 2. sept. Leiga fyrir Illugastaði er kr. 15.000 vikan.

 

 

 

Ölfusborgir

Hús og búnaður: Húsið var allt endurbyggt árið 2006, sólstofa var byggð við húsið, nýjar innréttingar og ný tæki eru í húsinu. Á glæsilegri veröndinni, sem er afgirt, er heitur pottur. Svefnaðstaða er fyrir 6-8 manns, sængur og koddar f. 8 og borðbúnaður f. 8 barnastóll og barnarúm.

Staðsetning og staðhættir: Í Hveragerði, sem er í göngufjarlægð frá bústaðnum, er alla þjónustu að finna og svo er líka stutt að skreppa á Selfoss sem er í ca 5 mín. akstursfjarlægð. Einnig er stutt að keyra t.d. á Stokkseyri, Eyrarbakka, Þorlákshöfn og í uppsveitir Árnessýslu þar sem margt skemmtilegt er að skoða. T.d. draugasafnið á Eyrarbakka eða dýragarðinn í Slakka, boðið er upp á kajaksiglingar frá Stokkseyri og flúðasiglingar niður Hvítá. Við vekjum athygli á því að hægt er að fá ýmsa þjónustu keypta hjá Heilsustofnun NLFÍ sem er í næsta nágrenni.

Leigutímabil í boði: Orlofshúsið við Ölfusborgir stendur félagsmönnum til boða í allt sumar, frá 27. maí til 2. sept. Leiga fyrir Ölfusborgir er kr. 15.000 vikan.

 

 

 

Húsafell

Kiðárskógur 10

Staðsetning og staðhættir: Um er að ræða nýlegan bústað í Kiðárskógum 10. Ekki þarf að kynna Vestlendingum dásemdir Húsafells sem sumardvalarstaðar.

Hús og búnaður: Húsið er 94 fm. með svefnlofti, tveimur svefnherbergjum, svefnkrók í stofu, eldhús og baðherbergi með sturtu. Heitur pottur er á palli. Húsið er búið öllum venjulegum búnaði fyrir 6 til 10 manns.

Leigutímabil í boði: Orlofshúsið í Kiðárskógum 10 stendur félagsmönnum til boða í allt sumar frá  27. maí til 2. september. Leiga fyrir Kiðárskóg 10 er kr. 18.000 vikan.

 

 

 

Kiðárskógur 4

Stéttarfélag Vesturlands hefur framlengt leigusamning fram á haust um Kiðárskóg 4, húsið er 62 fm. auk 25. fm. svefnlofts. Tvö svefnherbergi og stofa, eldhúskrókur og baðherbergi með sturtu. Heitur pottur er á palli. Húsin verða búin öllum venjulegum búnaði fyrir 6 til 8 manns. Leigutímabil: Kiðárskógur 4 stendur félagsmönnum til boða frá 3. júní til 26. ágúst. Leiga fyrir Kiðárskóg 4 er kr. 15.000 vikan.

 

 

 

 

Glaðheimar á Blönduósi

Stéttarfélag Vesturlands hefur tekið á leigu nýlegan sumarbústað á Blönduósi.
Hús og búnaður: Húsið er 56 fm, tvö svefnherbergi með svefnaðstöðu fyrir 5 - 6 manns. Allur hefðbundinn búnaður er í eldhúsi s.s. eldavél með ofni og  ísskápur. Umhverfis húsið er stór skjólgóður pallur með heitum potti. 
Staðhættir: Glaðheimar eru á bökkum Blöndu. Þar er tjaldstæði og sumarhúsabyggð. Þjónustumiðstöð er á svæðinu. Kaupstaðurinn er handan þjóðvegarins og þar er öll almenn þjónusta. Glæsileg ný sundlaug var opnuð á Blönduósi sumarið 2010. Veitingastaðurinn Potturinn og Pannan er í göngufæri frá tjaldstæðinu. Í Húnavatnssýslum eru margir áhugaverðir staðir að skoða og margt hægt að gera sér til skemmtunar.
Leigutími:  1. Júní  til 26. ágúst. Leiga fyrir Glaðheima er kr. 15.000 vikan.

 

 

Orlofsíbúðir

 

Furulundur 8 o, Akureyri

 Hús og búnaður: Íbúðin að Furulundi 8 var keypt haustið 2005. Svefnpláss er fyrir 6-8 manns, sængur og koddar f. 8 fylgja og borðbúnaður f. 8. Allur almennur búnaður er í íbúðinni auk barnastóls og barnarúms. Þetta er 3ja herb. íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi þar sem eingöngu eru orlofsíbúðir í eigu stéttarfélaga. Íbúðin er góðu ástandi og á það einnig við um allan húsbúnað. Stór afgirt verönd er við íbúðina.

Staðsetning og staðhættir: Íbúðin er í hjarta bæjarins þar sem stutt er í sundlaug Akureyrar og miðbæinn. Á Akureyri er alla mögulega þjónustu að finna, einnig er þar ríkt menningarlíf.  Á Akureyri er einnig nyrsti 18 holu golfvöllur í heimi, Jaðarsvöllur. Kjarnaskógur er fjölbreytt útivistarsvæði með alhliða möguleikum til hollrar útivistar. Þar eru tveir blakvellir sem ætlaðir eru almenningi og ýmis leiktæki fyrir börn og fullorðna. Góð grillaðstaða er þar fyrir almenning og er mjög vinsælt hjá fjölskyldum og hópum að safnast saman í Kjarna, grilla og eiga saman góðar stundir við leiki og náttúruskoðun. Sjá nánari upplýsingar á www.akureyri.is

Leigutímabil í boði: Íbúðin stendur félagsmönnum til boða í allt sumar, frá 27. maí til 2. sept.

 

 

 

Ásholt 2, Reykjavík

Orlofssjóður hefur fest kaup á 3ja herbergja íbúð í Ásholti 2. Íbúðin er í stóru fjölbýlishúsi þar sem á annan tug íbúða eru í eigu stéttarfélaga.

Íbúðin var fjögurra herbergja í upphafi og er því mjög rúmgóð. Henni fylgir stæði í bílageymslu, þar sem mjög góð þvottaaðstaða er fyrir bíla. Þvottahús með vönduðum tækjum er í sameign. Eigninni fylgir líka fallegur lokaður garður og er hægt að ganga beint úr íbúðinni út í garðinn. Húsfélagið hefur í sinni þjónustu mann sem sér um alla sameignina og er eignin annáluð fyrir snyrtimennsku á allan hátt. Inngangur í Ásholtið er frá Laugavegi og stendur húsið rétt austan við Hlemm, það er því á mjög góðum stað og miðborgin í þægilegu göngufæri.

Leigutímabil: Hér gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær og verður vikunum ekki úthlutað, hvorki að sumri né vetri til. Hægt er að leigja íbúðina dag fyrir dag á virkum dögum en helgar verða eingöngu leigðar frá föstudegi til sunnudags.

Verð: Fyrir félagsmenn er verðið kr. 4.500 fyrir staka nótt á virkum degi. Fyrir virka viðbótarnótt kr. 3.500 og fyrir helgi er verðið kr. 9.000. Vikan leigist á kr. 21.000 til félagsmanna.

Hægt er að leigja lín fyrir kr. 1.100 á mann, innifalið í því eru rúmföt og baðhandklæði, greiðist á sama tíma og leigan.

 

Reykingar eru stranglega bannaðar í orlofsíbúðum Stéttarfélags Vesturlands

 

Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í orlofsíbúðum félagsins.