Orlofshús félagsins

 

Illugastaðir  

Hús og búnaður: Hús félagsins á Illugastöðum í Fnjóskadal er notalegt og vel búið orlofshús með stórri og góðri afgirtri verönd og heitum potti, sem settur var upp fyrir rúmum 2 árum. Hitaveita er komin í orlofsbyggðina. Svefnpláss er fyrir 6-8 manns, sængur og koddar f. 8 og borðbúnaður f. 8. Í húsinu er einnig barnastóll og barnarúm.

Staðsetning og staðhættir: Kyrrðin og náttúrfegurð Fnjóskadalsins er rómuð og ekki langt að fara á Akureyri, til Húsavíkur og/eða Mývatns til að njóta þess sem þar er boðið upp á. Þjónustumiðstöðin á Illugastöðum býður upp á margs konar þjónustu, þar eru seldar hinar ýmsu nauðþurftir og einnig er þar mjög góð sundlaug og minigolf.

Leigutímabil í boði: Sumarhúsið stendur félagsmönnum til boða í allt sumar, frá 27. maí til 2. september.

 

 

 

Ölfusborgir

Hús og búnaður: Húsið var allt endurbyggt árið 2006, sólstofa var byggð við húsið, nýjar innréttingar og ný tæki eru í húsinu. Á glæsilegri veröndinni, sem er afgirt, er heitur pottur. Svefnaðstaða er fyrir 6-8 manns, sængur og koddar f. 8 og borðbúnaður f. 8 barnastóll og barnarúm.

Staðsetning og staðhættir: Í Hveragerði, sem er í göngufjarlægð frá bústaðnum, er alla þjónustu að finna og svo er líka stutt að skreppa á Selfoss sem er í ca 5 mín. akstursfjarlægð. Einnig er stutt að keyra t.d. á Stokkseyri, Eyrarbakka, Þorlákshöfn og í uppsveitir Árnessýslu þar sem margt skemmtilegt er að skoða. T.d. draugasafnið á Eyrarbakka eða dýragarðinn í Slakka, boðið er upp á kajaksiglingar frá Stokkseyri og flúðasiglingar niður Hvítá. Við vekjum athygli á því að hægt er að fá ýmsa þjónustu keypta hjá Heilsustofnun NLFÍ sem er í næsta nágrenni.

Leigutímabil í boði: Orlofshúsið við Ölfusborgir stendur félagsmönnum til boða í allt sumar, frá 27. maí til 2. september.

 

 

 

Húsafell

Um er að ræða nýlegan bústað í Kiðárskógum 10. Ekki þarf að kynna Vestlendingum dásemdir Húsafells sem sumardvalarstaðar. Húsið er 75 fm. með svefnlofti, tveimur svefnherbergjum og stofu, eldhúsi og baðherbergi með sturtu. Heitur pottur er á palli. Húsið er búið öllum venjulegum búnaði fyrir 6 til 10 manns.

Leigutímabil í boði: Orlofshúsið í Kiðárskógum 10 stendur félagsmönnum til boða í allt sumar frá  27. maí til 2. september.

 

 

 

Glaðheimar á Blönduósi

Stéttarfélag Vesturlands hefur tekið á leigu nýlegan sumarbústað á Blönduósi.
Hús og búnaður: Húsið er 56 fm, tvö svefnherbergi með svefnaðstöðu fyrir 5 - 6 manns. Allur hefðbundinn búnaður er í eldhúsi s.s. eldavél með ofni og  ísskápur. Umhverfis húsið er stór skjólgóður pallur með heitum potti. 
Staðhættir: Glaðheimar eru á bökkum Blöndu. Þar er tjaldstæði og sumarhúsabyggð. Þjónustumiðstöð er á svæðinu. Kaupstaðurinn er handan þjóðvegarins og þar er öll almenn þjónusta. Glæsileg ný sundlaug var opnuð á Blönduósi sumarið 2010. Veitingastaðurinn Potturinn og Pannan er í göngufæri frá tjaldstæðinu. Í Húnavatnssýslum eru margir áhugaverðir staðir að skoða og margt hægt að gera sér til skemmtunar.
Leigutími:  1. Júní  til 26. ágúst.

 

 

 

Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í sumarhúsum eða orlofsíbúðum félagsins.