Sveitamennt

Sveitamennt SGS og LN

Kynningamyndband á íslensku má nálgast hér
Information in English are here

Sveitamennt SGS og LN er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands.

Sveitamennt tók formlega til starfa 1. janúar 2007 og byggir á gr. 13.4.3. um starfsmenntunarsjóð í kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga (LN) og Starfsgreinasambands Íslands (SGS).

Markmið sjóðsins er annars vegar að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma og efla starfsmenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni.

Sveitamennt skiptist í tvær deildir og sinnir hlutverki sínu með eftirfarandi hætti:

Sveitarfélagadeild sinnir hlutverki sínu með því að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði starfsmenntunar sem eru í samræmi við markmið sveitarfélaga sem í sjóðinn greiða; stéttarfélaga sem að sjóðnum standa; eða verkefna sem sjóðstjórn skipuleggur. Auk þess styrkir deildin verkefni sem aðilar semja um í kjarasamningi.

Einstaklingsdeild veitir styrki til einstaklinga, félagsmanna aðildarfélaganna til þess að þeir eigi kost á að sækja nám/námskeið með vinnu án verulegs kostnaðar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei